Greiðsluskilmálar

Síðast uppfært: september 2026

1. Almennt

Þessir skilmálar gilda um greiðslur sem framkvæmdar eru með greiðslulinkum sem Bókhaldsráð ehf. sendir viðskiptavinum vegna bókhalds-, launa-, skattaráðgjafar- eða annarrar tengdrar þjónustu.

Með því að greiða í gegnum greiðslulink samþykkir viðskiptavinur þessa skilmála.

2. Þjónusta og verð

Greiðslulinkur getur átt við um:

Þjónusta er veitt samkvæmt samningi eða samkomulagi milli Bókhaldsráðs og viðskiptavinar. Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og með virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram.

3. Greiðsla

Greiðsla fer fram á öruggri greiðslusíðu færsluhirðis Bókhaldsráðs og telst móttekin þegar staðfesting hefur borist frá greiðslugátt. Við tökum við greiðslukortum frá Visa og Mastercard.

4. Afhending

Bókhaldsráð selur þjónustu en ekki vörur og því eru engar vörur sendar. Þjónustan er veitt eins og um er samið við viðskiptavin.

5. Endurgreiðslur og réttur til að falla frá samningi

Þar sem um er að ræða sérhæfða bókhalds- og ráðgjafarþjónustu eru endurgreiðslur almennt ekki veittar vegna þjónustu sem hefur verið afhent, unnin eða hafin.

Endurgreiðslur geta þó komið til greina ef:

Óskir um endurgreiðslu skulu berast skriflega á bokhald@bokhaldsrad.is. Samþykktar endurgreiðslur eru lagðar inn á sama greiðslukort og greitt var með.

Neytandi á rétt á að falla frá samningi um þjónustu innan 14 daga samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga. Sá réttur fellur niður þegar þjónustan hefur verið að fullu veitt að beiðni neytandans, og hafi neytandi óskað eftir að þjónusta hefjist innan frestsins greiðir hann fyrir þann hluta hennar sem þegar hefur verið veittur. Rétturinn á ekki við um viðskipti milli fyrirtækja.

6. Kvartanir

Athugasemdir og kvartanir vegna þjónustu eða greiðslu skal senda á bokhald@bokhaldsrad.is eða bera upp í síma 517 2121. Við svörum kvörtunum innan 5 virkra daga.

7. Persónuvernd og öryggi

Bókhaldsráð meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu sína og gildandi persónuverndarlög. Upplýsingar sem berast vegna greiðslu eru eingöngu notaðar til að afgreiða greiðsluna og veita þjónustu, og þær eru ekki afhentar þriðja aðila nema það sé nauðsynlegt til að ljúka greiðslu eða skylt samkvæmt lögum.

Greiðslukortaupplýsingar eru slegnar inn á greiðslusíðu færsluhirðis og eru hvorki sendar til né vistaðar hjá Bókhaldsráði, heldur eingöngu meðhöndlaðar af viðurkenndum greiðsluþjónustuaðila.

8. Ábyrgð

Bókhaldsráð ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til tímabundinna bilana í greiðslugáttum, fjarskiptakerfum eða annarra þátta sem eru utan stjórnunar fyrirtækisins.

9. Upplýsingar um seljanda

Bókhaldsráð ehf.
Kennitala: 470818-0690
VSK-númer: 154451
Heimilisfang: Suðurgata 126, 300 Akranes
Netfang: bokhald@bokhaldsrad.is
Sími: +354 517 2121

10. Breytingar á skilmálum

Bókhaldsráð áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum. Breytingar taka gildi þegar þær eru birtar á vefsíðunni.

11. Lög og varnarþing

Um þessa skilmála gilda íslensk lög.

Komi upp ágreiningur vegna greiðslu eða þjónustu skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Neytendur geta einnig skotið ágreiningi til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Að öðrum kosti skal reka mál fyrir Héraðsdómi Vesturlands eða öðrum lögbærum íslenskum dómstóli.