Við sjáum um bókhaldið svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum

Bókhaldsþjónustu og ráðgjöf fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Áreiðanleiki
Fagmennska
Persónuleg þjónusta

Bókhalds- og ráðgjafarfyrirtæki á Akranesi

Bókhaldsráð er bókhalds- og ráðgjafarfyrirtæki á Akranesi sem þjónustar fyrirtæki og einstaklinga um allt land. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, áreiðanleika og fagmennsku í öllum verkefnum.

Hjá okkur færðu beinan aðgang að bókaranum þínum og fljótt svar við öllum spurningum. Við notum nútímalegar stafrænar lausnir til að einfalda bókhaldið og gefa þér betri yfirsýn yfir reksturinn.

Persónuleg þjónusta

Beinn aðgangur að bókaranum þínum, ekki símaþjónusta.

Stafrænar lausnir

Nútímaleg tækni sem einfaldar bókhaldið og gefur betri yfirsýn.

Áreiðanleiki

Nákvæmt og rétt bókhald sem þú getur treyst á.

Heildstæð bókhaldsþjónusta

Við bjóðum upp á breiða þjónustu sem nær yfir allt sem tengist bókhaldi og fjármálum.

Almennt bókhald

Dagleg bókun reikninga, skil á virðisaukaskatti, afstemmingar á bankareikningum, lánardrottnum og viðskiptamönnum.

Launavinnsla

Útreikningur launa. Gerð launaseðla, bankaskilagreina og skilagreina til skattayfirvalda, lífeyrissjóða, stéttarfélaga og annarra.

Ráðgjöf

Við bjóðum upp á rekstrarráðgjöf fyrir fjármál fyrirtækja og skipulag bókhaldsmála.

Skattframtal

Við önnumst gerð skattframtals fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Aðeins fyrir fasta viðskiptavini

Greiðsla og útgáfa reikninga

Við sjáum um greiðslu og útgáfu reikninga. Reikningar eru sendir rafrænt og kröfur stofnaðar í netbanka.

Innleiðing bókhaldskerfa

Við bjóðum upp á ráðgjöf og aðstoð við innleiðingu bókhalds- og sölukerfa.

Hvað segja viðskiptavinir okkar

Frábær þjónusta og alltaf tilbúin að svara spurningum. Bókhaldsráð hefur tekið allan áhyggjuþunga af bókhaldinu mínu og gefið mér tíma til að einbeita mér að rekstrinum.

Mjög fagleg og áreiðanleg þjónusta. Persónulega touchið er það sem aðgreinir Bókhaldsráð frá öðrum. Ég fæ alltaf fljótlegt svar og góða ráðgjöf.

Við erum tilbúin að aðstoða þig

Sendu okkur fyrirspurn.